Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
16.12.2007 | 17:51
Jóladagur
Ég er að dunda mér við að teikna í tölvunni. Þessa mynd gerði ég áðan.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 18:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.5.2007 | 05:01
Ég fékk Special Award
Ég fékk aftur Special Award á Assambly sem er á hverjum fimmtudegi í skólanum. Þá syngjum við skólasönginn, We are the Students of the International School, og sumir fá viðurkenningar.
8.5.2007 | 19:05
Syndandi með höfrungum
Ég fór í tveggja vikna frí í skólanum, gaman, gaman. Við fórum til Ponto do Ouro sem þýðir gullna hliðið. Við fórum með Jasperi vini mínum.Við fórum fyrst með ferju sem tók 12 bíla. Vegurinn var hræðilegur. Við þurftum að keyra í 3 klukkutíma. Við gátum séð fíla á leiðinni en við sáum engan. Svo komum við. Við fórum á ströndina. Ég fór með pabba útí. Svo ætlaði ég að synda til baka en ég var næstum drukknaður. Þá kom mamma og ég greip í hana. Þá kom risastór alda og tók af mér sundgleraugun. Og ég fann þau ekki aftur. Kannski er einhver höfrungur að synda með þau núna eða hákarl.
Við þurftum að vakna klukkan sex. Við fórum að synda með höfrungum. Við þurftum að ýta bátnum útí sjó. Fyrst hoppuðu krakkarnir uppí. Svo stelpurnar. Það var skrítið . Þegar báturinn var kominn í sjóinn hoppuðu karlarnir upp í. Svo fórum við af stað.
Svo fóru nokkrir útí og svo fór ég. Og það var karl sem hjálpaði mér útí. Hann var eins og sjóræningi. Við sáum spotted dolphins og bottle nose dolphins. Það var einn spotted dolphin bara beint fyrir neðan mig. Svo höfðum við svona öndunartæki. Svo þegar við vorum búin að kafa 5 sinnum þá fórum við heim að fá okkur góðan morgunmat sem var beikon, egg, baked beans og pulsur sem voru ógeðslegar í laginu.
Svo fórum við á ströndina aftur. Pabbi pantaði bretti fyrir okkur Jasper og mig. Við fundum ostruskeljar og aðrar skeljar. Ostruskelin sem ég fann var gull lituð. Svo fórum við heim. Það var óóóóóóóóóóótrúlega skemmtilegt þarna.
Vinir og fjölskylda | Breytt 9.5.2007 kl. 04:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.4.2007 | 15:08
Vonda sprautan og malarían
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 15:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.4.2007 | 10:33
Kominn í frí í þrjár vikur
Ég ætla að fara á einhvern stað, þegar þú ferð í sjóinn þá geturðu séð höfrunga og getur synt með þeim og þeir meiða þig ekki.
Núne er ég á leiðinni í sund með nýja vatns-frissbíinn minn og ég ætla að fara með Jasper vini mínum.
Þessar myndir eru frá síðasta skóladeginum sem var í gær, þá var special assembly á fótboltavellinum sem er hinu megin við götuna. Hver bekkur gekk í röð og þið sjáið á myndunum kennarann minn, Mr. Peter í rauðum bol og hann er fremstur. Við vorum öll í rauðu af því að við vorum að keppa í fótbolta og okkar lið var rautt. Svo er mynd af Miss Ancha en hún kenndi mér special english af því að ég kunni enga ensku þegar ég kom. Hún er góð og skemmtileg. Nú þarf ég ekki fleiri sérstaka tíma í ensku, fer í ensku með bekknum og portúgölsku í staðinn, og ég gaf henni blóm.
þarna erum við að ganga til assembly
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 11:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.4.2007 | 16:44
sumarið er komið
14.4.2007 | 11:53
Myndbönd úr sundkeppninni
Hér eru myndbönd sem pabbi bjó til fyrir mig. Við hákarlarnir kepptum alltaf á 5. og 6. braut.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 12:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.4.2007 | 13:32
Sundkeppni í skólanum, ég var í Hákarlaliðinu
Það var sundkeppni í skólanum í fyrradag og það voru þrjú lið, Sharks, Dolphins og Barracudas. Ég var í Sharks. Ég lenti í 2.-3. sæti í 25 m bringusundi, í 2. sæti í 25 m skriðsundi og í 3. sæti í 50 m bringusundi.
Vinir og fjölskylda | Breytt 14.4.2007 kl. 11:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.3.2007 | 20:39
Ferð til Swazilands
Við fórum til Swazilands með Jasper vini mínum og Stef pabba hans um daginn. Stef tók þessar myndir.
30.3.2007 | 20:26
Bekkurinn minn
Hér er mynd af bekknum mínum sem Stef, pabbi Jaspers vinar míns tók. Ef þið smellið á hana aftur og svo aftur þá sjáið þið hana í fullri stærð.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 20:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)