11.1.2007 | 18:10
"Ég er fullur af lukku!"
Á morgun fer ég í Kruger í nætursafarí. Þá get ég séð híönur og hlébarða. Svo gisti ég í Kruger og svo gisti ég hjá Vinsenti.
Nú er ég búinn í Kruger. Ég sá antilopur, gíraffa, híönu, flóðhesta, fíla, sebrahesta, strúta, villisvín. Núna segi ég frá næturferðinni. Fyrst sá ég nashyrning. Svo tegund af antilopu, hún var svört. Ég sá tíu ljón, híönu, buffalo, 3 snáka, apa. Þegar pabbi og Ásdís voru að koma að sækja mig og mömmu þá voru þau á leiðinni þá sáu þau 20 30 apa að leika sér á götunni.
Athugasemd frá pabba: Ef þið smellið á myndirnar í dálkinum vinstra megin á síðunni, sjást þær í fullri stærð. Myndatextinn sést einnig þegar örin er lögð yfir myndirnar.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt 17.1.2007 kl. 07:10 | Facebook
Athugasemdir
Þetta hefur verið alveg frábært hjá þér.
Bið kærlega að heilsa fjölskyldunni.
Kv Þóra Kristín :)
Þóra Kristín (IP-tala skráð) 16.1.2007 kl. 11:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.