8.5.2007 | 19:05
Syndandi með höfrungum
Ég fór í tveggja vikna frí í skólanum, gaman, gaman. Við fórum til Ponto do Ouro sem þýðir gullna hliðið. Við fórum með Jasperi vini mínum.Við fórum fyrst með ferju sem tók 12 bíla. Vegurinn var hræðilegur. Við þurftum að keyra í 3 klukkutíma. Við gátum séð fíla á leiðinni en við sáum engan. Svo komum við. Við fórum á ströndina. Ég fór með pabba útí. Svo ætlaði ég að synda til baka en ég var næstum drukknaður. Þá kom mamma og ég greip í hana. Þá kom risastór alda og tók af mér sundgleraugun. Og ég fann þau ekki aftur. Kannski er einhver höfrungur að synda með þau núna eða hákarl.
Við þurftum að vakna klukkan sex. Við fórum að synda með höfrungum. Við þurftum að ýta bátnum útí sjó. Fyrst hoppuðu krakkarnir uppí. Svo stelpurnar. Það var skrítið . Þegar báturinn var kominn í sjóinn hoppuðu karlarnir upp í. Svo fórum við af stað.
Svo fóru nokkrir útí og svo fór ég. Og það var karl sem hjálpaði mér útí. Hann var eins og sjóræningi. Við sáum spotted dolphins og bottle nose dolphins. Það var einn spotted dolphin bara beint fyrir neðan mig. Svo höfðum við svona öndunartæki. Svo þegar við vorum búin að kafa 5 sinnum þá fórum við heim að fá okkur góðan morgunmat sem var beikon, egg, baked beans og pulsur sem voru ógeðslegar í laginu.
Svo fórum við á ströndina aftur. Pabbi pantaði bretti fyrir okkur Jasper og mig. Við fundum ostruskeljar og aðrar skeljar. Ostruskelin sem ég fann var gull lituð. Svo fórum við heim. Það var óóóóóóóóóóótrúlega skemmtilegt þarna.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt 9.5.2007 kl. 04:06 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.